Um hraunprýðis ræktun
Ég heiti Sigrún Símonardóttir
Ég bý í Hveragerð ásamt dóttur minni og þremur silky terrier tíkum, þeim Kyru, Aryu og Sönsu.
Frá 10 ára aldri hefur alltaf verið hundur á mínu heimili. Fyrst border collie/íslenskur mix, Kátur.
Síðar var það íslenska fjárhundstíkin Táta.
Árið 2004 kom fyrsti Silkyinn, Moli, inn á heimilið og strax ári síðar kom fyrsta tíkin mín, Gola, inn á heimilið. Eftir það fjölgaði þeim bara. Þoka, kom 2006 og svo hvolpar sem við héldum eftir, Narnía Eik, Eldur, Kvistur og Alparós.
Mamma mín og ég hófum ræktun 2007 en þá undir merkjum UCI. Árið 2016 hættum við í því félagi og var planið bara að njóta lífsins með hundum okkar.
En örlögin höfðu önnur plön!
Í lok október 2016 var mér boðið að koma með að kíkja á silky terrier hvolpa. Ég fór með og gjörsamlega lá fyrir einni tíkinni í því goti. En ég var ekki að fá mér hund.
í lok árs 2018 var mér hinsvegar boðið að taka þessa sömu tík á fóðursamning.
Það varð því úr að í byrjun árs 2019 kom Silky Treasures Kyra inn á heimilið og hefur hún verið hér síðan og er í dag í minni eigu.
Kyra átti tvö got meðan hún var í eigu Rhonicu og Silky Treasures ræktunar og kemur Arya mín úr fyrra gotinu hennar. Aryu á ég með Rhonicu.
Svo bættist litli orkuboltin hún Sansa við hópinn árið 2024. Sansa er dóttir Aryu.
Einnig á ég einn rakka með Rhonicu, hann Bambam.
Árið 2020 sótti ég um ræktnarnafn innan HRFÍ og FCI og fékk það samþykkt.
Mitt fyrsta got undir merkjum HRFÍ fæddist 15.05.2026 og úr því goti er Anya sem er í fóstri hjá Siggu og fjölskyldu.
Ég á Rhonicu hjá Silky Treasures svo mikið að þakka. Hún hefur stutt mig áfram og vinn ég mikið með henni. Ég mun seint getað þakkað henni fyrir alla hennar hjálp
Create Your Own Website With Webador