Anya er úr fyrsta gotinu mínu sem er skráð hjá HRFÍ.
Hún er miðjan í fimm hvolpa goti.

Mér fannst mjög erfitt að velja úr þessum hvolpum en á móti var ég ákveðin að setja tík á fóðurheimili og þar sem þar eru börn þurfti hvolpurinn að geta verið innan um börn.

Loks stóð valið um tvær systur en Anya var opnari og sótti meira í Lilju. 
Anya var svona lítill rabel. Hún stjórnaði hvolpahópnum. Sterkur karakter sem náði strax að fanga mann. Höfuðlagið, eyrun og boddyið er eitthvað sem náði til mín.

Anya lifir góðu lífi hjá Siggu og Atla og hluti af þeirra fjölskyldu.

Ég er mjög spennt að sjá hvornig þessi dama þroskast.