Augu - hrein
Hnéskeljar - 0/0
Hjarta - án aukahljóða
Arya er "wildcardið" mitt.
Hún er mjög fljót að treysta fólki og ef þú kemst ekki strax í trausthringinn þá kemstu þangað aldrei!
Þegar ég segi wildcard þá er það vegna þess að hún getur verið alveg til í allt en svo á sekúndubroti þá er hún ekki til í það. Og þennan leik hefur hún leikið á sýningum, oftar en einu sinni og oftar en tvisvar.
Arya er kelirófa og elskar sófakúr. Hún ræðst á mann til að drekkja manni í kossum.
Arya er móðir tveggja gota hjá Silky Treasures, N og O gots, og móðir A gots hjá Hraunprýðis ræktun.
Create Your Own Website With Webador