Silky Treasure Kyra

Kyra er drottningin í hópnum og ættmóðirin.

Hún kom til mín í byrjun árs 2019 þegar mér var boðið að taka hana á fóðursamning.
Ég hafði séð hana seinast sem 6 vikna hvolp og gjörsamlega lá fyrir henni þá svo ég var ekkert rosalega lengi  að ákveða að prófa þetta þó að ég væri pínu efins um að það mindi ganga.
En Kyra er hér enn. Gamla kerlingin, eignaði sér allt og þykist svo sannarlega eiga hlutina skuldlaust.

Hún átti tvö got hjá Silky Treasures en er komin á eftirlaun hvað ræktun varðar. Hinsvegar elskar hún sýningahringinn.
Ef ég tek fram sýningartauminn þá er hún mætt, tilbúin að svífa hringinn.