Ég hafði baðið lengi eftir þessari tík.
Það var um það leiti sem Arya varð ársgömul að ég sagði við Rhonicu að mig langaði í tík undan Aryu. Ég vildi halda í "dömulínuna" frá Kyru.
Árin liðu og reglulega sagði ég að mig langaði í tík undan Aryu.
Svo kom að því að það átti að para hana og þá hófst hausverkurinn við að finna rakka til að feðra gotið.
Ég tel að Dexter hafi verið fullkomið val til að fá boddy og skilaði hann því vel til hvolpanna.
Svo var það hausverkurinn minn að velja tík úr gotinu.
Sansa varð fyrir valinu. Ég sá boddy sem ég vildi, skapgerð sem ég vildi og ekki sýst að hún sótti í Lilju.
Ég er mjög spennt að sjá hvernig hún þroskast.
Sansa er fullkomin viðbót við heimilið. Alltaf kát með dillandi skott, algjör stríðnispúki sem heldur að hún megi allt, elskar Lilju og eru þær tvær partners in crime.
Create Your Own Website With Webador